2016-05: ÁG – vormyndir

Sunnudaginn 29.maí 2016 flugu Ásmundur Guðnason og Edward Finnsson á flugvélinni TF-DVD frá Reykjavík og í Fljót. Lent var á grasbrautum, bæði Atlastaðamegin og Tungumegin við ósinn, og gistu eina nótt en héldu aftur suður seinni part 30.maí.

Ásmundur tók nokkrar myndir, sem tala sínu máli. Snjó hefur mikið til tekið upp á láglendi. Fyrir utan það að skoða hvort eitthvað alvarlegt væri að  í bústöðunum reyndu þeir að auðvelda leið Bæjarárinnar niður sinn gamla farveg fyrir ofan Bárubæ. Augljóst er að áin hefur leitað mikið upp úr gamla farveginum og hreinsað burt jarðveg og gróður, auk þess sem grjót virðist hafa borist þangað.

Ásmundur birti þessar myndir á Facebooksíðu sinni, svo margir hafa væntanlega séð þær þar, en hann en gaf leyfi til birtingar hér á síðunni, hér ætti að vera auðvelt að nálgast þær um komandi framtíð.

 

Print Friendly, PDF & Email
EnglishUSA