Ættli? Ætli ? ….. Atli !

Jamm. 

Á morgun, segir sá lati. Einu sinni á ári, greiði ég smávægilega upphæð fyrir að halda úti myndasíðu til hliðar við myndirnar sem eru á þessari síðu. Þessi síða hefur verið þarna frá árinu 2003, eða þar um bil. 

Tunga í Fljóti. Íbúðarhús og skemma Verharðs. Myndin er upphaflega stærri – sést meira af Tunguhorni og hlaðinu, en hér hefur það verið skorið í burtu.

Þegar undanfari þessarar heimasíðu sem þú ert nú að kíkja á, fór í loftið, var ekki hægt að sýna myndasöfn þar. Bara eina og eina mynd.

Þess vegna var farin sú leið að hafa sér myndasíðu.

Nú í dag er hægt að setja myndasöfn inn á þessa síðu – og ég er alltaf alveg að fara að ljúka því…….

Fljótavík, Júlíusarhús fjær, Jósefshús nær, Kögur í baksýn,
Fljótavík, Júlíusarhús fjær, Jósefshús nær, Kögur í baksýn,

Það er við svona tækifæri sem maður man eftir því að hjá sumum er stundum gripið til þess að skella skuldinni á hann Atla…. ég Atlaði að vera búinn að þessu.

En – það má nú bíða.

Alla vega: hér er slóðin á gömlu myndasíðuna – þar eru einhverjar myndir sem ekki sjást annars staðar.

http://fljotavik.123.is/photoalbums/

 

Ásgeir

EnglishUSA