Í 13.tölublaði fjórða árgangs blaðsins Vestfirðir, var á bls. 6 fjallað um hátíð eða ráðstefnu sem haldin var 12.júní 2015 í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, til að minnast þess að 40 ár voru liðin frá stofnun friðlandsins á Hornströndum. Ef þið lásuð þetta ekki á sínum tíma, ættuð þið endilega að gera það. (Lesið líka frásögn Matthildar Guðmundsdóttur, á bls. 8-9 í, um lífið á Látrum í Aðalvík.)
Þrátt fyrir að liður á dagskrá hafi borið titilinn “Landeigandi í friðlandi” skrifaði blaðið ekki eitt orð um það erindi. Hvers vegna er það svo? Tilviljun? Hentaði það ekki málstaðnum? Er það málefni eitthvað sem ekki má tala um?
Stór hluti friðlandsins er í þinglýstri einkaeign – og í mörgum tilfellum voru eigendur að greiða skuldir og gjöld af þessum jörðum áratugum saman eftir að allt fór í eyði, og það á sama tíma og fjölskyldurnar voru að greiða af nýjum fasteignum á nýjum stað.
Er það virkilega svo, að fjölmiðlar ætli að þegja sjónarmið landeigenda í hel? Tískuhugtakið er þöggun. Ef það er þannig, verða landeigendur að hisja upp um sig, og koma sjónarmiðum sínum á framfæri! Ég veit að ég hljóma eins og rispuð vinylhljómplata þegar ég minni á að það styttist í að Óbyggðanefnd fjalli um svæðið.
Er það kanski þannig að allur almenningur – blaðamenn þar á meðal – líti nú þegar þannig á, að fríðlandið sé í eigu ríkisins? Það skildi þó ekki vera.
Ásgeir
PS: Ef einhvern langar að lesa eitthvað sem fljótlegt er að sofna út frá – þá er þessi texti sem vísað er í hér, vel til þess fallinn.
Comments
3 responses to “Á ríkið friðland Hornstranda?”
Mæltu manna heilastur Ásgeir
Eignarrétur er kanski orðinn einskis virði,ha.
Þeir sem skipuðu þetta samfélag á sínum tíma eiga að eiga Friðlandið, og svo áfram; AFKOMENDUR. amen !!!